Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018

Úrskurður velferðarráðuneytisins

Þriðjudaginn 5. júlí 2011 var í velferðarráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 7. mars 2010, til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum kærðu Héðinn hf., kt. 471194-3289, og  […], sem er rúmenskur ríkisborgari, fd.  […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá Héðni hf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa Ionut Catalin Trifu, sem er rúmenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Héðni hf. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, með síðari breytingum, sbr. a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu laga.

Þeirri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu hana til ráðuneytisins. Í erindi kærenda kemur meðal annars fram að þeir telji að almennur skortur sé á góðum málmiðnaðarmönnum hér á landi og að þörfin sé viðvarandi. Jafnframt kemur fram að Héðinn hf. hafi reynt margar leiðir til að fá nægilega hæfa starfsmenn til starfa. Í því skyni hafi meðal annars verið leitað til Vinnumálastofnunar sem og Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Að sögn kærenda hafi sú leit hins vegar ekki borið árangur og því hafi verið leitað til Rúmeníu eftir starfsmanni.

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 3. maí 2010. Með bréfi, dags. 4. júní 2010, ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar um umsögn stofnunarinnar vegna umræddrar stjórnsýslukæru og barst ráðuneytinu umsögn stofnunarinnar sama dag, dags. 2. júní sama ár.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að stofnunin telji að líta verði til þess að mjög slæmar horfur séu á innlendum vinnumarkaði í náinni framtíð. Þá ítrekar Vinnumálastofnun í umsögn sinni afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 2. mars 2010, þess efnis að samkvæmt lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innanlands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Bendir stofnunin á að íslenskur vinnumarkaður sé hluti af sameiginlegum vinnumarkaði innan Evrópska efnahagssvæðisins á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þurfi ríkisborgarar aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið ekki atvinnuleyfi hér á landi og njóti þeir forgangs að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að undanskildum ríkisborgurum Búlgaríu og Rúmeníu.

Áður en Vinnumálastofnun geti veitt tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli beri atvinnurekanda því að hafa óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki, þar á meðal aðstoð vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Að mati stofnunarinnar hafi umrædd skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu. Kemur meðal annars fram að atvinnurekandinn hafi ekki leitað til stofnunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf. Enn fremur tekur stofnunin fram að samkvæmt upplýsingum frá Eures,vinnumiðlun á Evrópska efnahagssvæðinu, hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki óskað eftir aðstoð vinnumiðlunarinnar við leit að starfsmanni í umrætt starf en hann hafi síðast leitað til vinnumiðlunarinnar í nóvember 2006. Það sé jafnframt álit Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, að unnt sé að finna starfsmann í umrætt starf af Evrópska efnahagssvæðinu. Stofnunin telji því ekki fullreynt að ráða einstakling í starfið sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Í því sambandi er jafnframt bent á að skráð atvinnuleysi hér á landi hafi á þeim tíma sem stofnunin veitti umsögn sína mælst um 9%.

Í umsögn sinni bendir Vinnumálastofnun á að íslensk stjórnvöld hafi áréttað þær skuldbindingar sem felast í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um forgang ríkisborgara ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins umfram ríkisborgara ríkja sem þurfa atvinnuleyfi á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga til að starfa hér á landi. Stofnunin vísar í þessu sambandi til úrskurða félags- og tryggingamálaráðuneytis sem kveðnir hafi verið upp frá því í september 2005 þar sem komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Í ljósi þess sem að framan greinir og stefnu stjórnvalda telur Vinnumálastofnun því ekki heimilt að veita atvinnuleyfi til útlendinga nema mjög ríkar ástæður séu fyrir hendi. Með tilliti til vinnumarkaðssjónarmiða telur stofnunin slíkar ástæður ekki vera fyrir hendi í máli þessu. Stofnunin telur að umrætt starf krefjist hvorki slíkrar sérþekkingar né að fullreynt sé að finna fólk til starfans á Evrópska efnahagssvæðinu, að það heimili undanþágu frá meginreglunni um forgang launafólks sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði til starfa hér á landi.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun að stofnuninni hafi borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfum, dags. 11. júní 2010, var kærendum gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Beiðni ráðuneytisins um afstöðu kærenda var ítrekuð með bréfum, dags. 29. október 2010. Þar sem ekki þótti ljóst af gögnum málsins hvort hlutaðeigandi atvinnurekandi hefði auglýst umrætt starf laust til umsóknar var enn fremur óskað eftir upplýsingum frá honum þar að lútandi. Hefði hann auglýst umrætt starf var jafnframt óskað eftir upplýsingum um ástæður þess að ekki hefði reynst unnt að ráða í starfið atvinnuleitanda sem þegar hefði aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Í bréfunum var tekið fram að ráðuneytið tæki málið til efnislegrar afgreiðslu ef afstaða kærenda og umbeðnar upplýsingar hefðu ekki borist fyrir 12. nóvember sama ár. Ráðuneytinu barst hvorki svarbréf frá umræddum útlendingi né hlutaðeigandi atvinnurekanda og er málið því tekið til efnislegrar afgreiðslu.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, var heimilt að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis til félags- og tryggingamálaráðuneytis, síðar velferðarráðuneytis, sbr. lög nr. 162/2010, um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar ráðuneyta, sbr. einnig lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli sem sótt hafði verið um á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra.

Lög nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, gilda um frjálsa för launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. þó ákvæði til bráðabirgða II við lögin, sbr. einnig lög nr. 154/2008, um breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, nr. 47/1993, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 96/2002. Lögin fela í sér innleiðingu á reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, sem kveður á um að ríkisborgurum ríkja innan svæðisins sé heimilt að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði að uppfylltum sömu skilyrðum og gilda gagnvart íslenskum ríkisborgurum.

Evrópska efnahagssvæðið stækkaði 1. ágúst 2007 er Búlgaría og Rúmenía gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. aðildarsamning EES. Á sama hátt og gert var við fyrri stækkun svæðisins á árinu 2004 er tíu ný ríki gerðust aðilar að samningnum var gerður fyrirvari við gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 106/2007, um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu. Þar á meðal var ákvæði til bráðabirgða II bætt við lög nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, þar sem fram kemur að ákvæði 1.–6. gr. reglugerðar ráðsins nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, ásamt síðari breytingum, taki ekki gildi um atvinnu- og búseturétt ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu. Jafnframt var ákvæði til bráðabirgða II bætt við lögin um atvinnuréttindi útlendinga þar sem fram kemur að a-liður 22. gr. laganna sem kveður meðal annars á um að ríkisborgarar í aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt lögunum eigi ekki við um ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu. Alþingi samþykkti í desember 2008 að nýta áfram til 1. janúar 2012 framangreindan fyrirvara við gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, sbr. lög nr. 154/2008, um breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, nr. 47/1993, lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 96/2002.

Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 154/2008 segir að þó gert hafi verið ráð fyrir í samningunum um inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu í Evrópusambandið að sömu reglur giltu á öllu svæðinu hafi engu síður þótt nauðsynlegt að semja um sérstaka aðlögun á löggjöf Evrópusambandsins á tilteknum sviðum. Meðal þess sem gerður hafi verið fyrirvari um hafi verið gildistaka ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópusambandsins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu hafi því ekki gert ráð fyrir að þau ákvæði tækju gildi að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara ríkja sem launamanna innan svæðisins fyrr en í fyrsta lagi 1. janúar 2009. Aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið var jafnframt gert heimilt að fresta gildistöku ákvæðanna í allt að fimm ár til viðbótar eða til 1. janúar 2014. Í frumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi á haustmánuðum árið 2008 segir enn fremur að nokkur óvissa ríki um stöðu og þróun á innlendum vinnumarkaði vegna þrenginga í efnahagslífi þjóðarinnar. Þá segir að aðstæður á íslenskum vinnumarkaði hafi breyst mjög hratt og erfitt sé að meta hversu langt sé að bíða þess að atvinnuhorfur batni á nýjan leik. Því sé ástæða til að leggja til í frumvarpinu að gildistöku ákvæða 1.–6 gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, verði frestað tímabundið samkvæmt efni sínu að því er varðar aðgengi ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu að íslenskum vinnumarkaði. Það leiði af frestun gildistöku 1.–6. gr. reglugerðar 1612/68/EBE að ákvæði a-liðar 22. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga taki ekki gildi fyrr en 1. janúar 2012 að því er varðar ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu. Ákvæði laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu atvinnuleyfa muni því gilda áfram eins og verið hafi um atvinnuréttindi ríkisborgara þessara ríkja.

Í ljósi framangreinds gilda ákvæði II. kafla laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, um tímabundin atvinnuleyfi til handa rúmenskum ríkisborgurum á sama hátt og áður en Rúmenía gerðist aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið enda þótt stjórnvöld hafi skuldbundið sig til að veita ríkisborgurum þess forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES sem lögfestur var með lögum nr. 106/2007, um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu. Það er því álit ráðuneytisins að sömu skilyrði þurfi að vera uppfyllt við veitingu tímabundinna atvinnuleyfa til rúmenskra ríkisborgara og almennt gildir um veitingu tímabundinna atvinnuleyfa vegna starfa erlendra ríkisborgara á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga. Njóti þeir því ekki sama forgangs í laus störf á innlendum vinnumarkaði og íslenskir ríkisborgarar sem og ríkisborgarar annarra aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu er meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

Í athugasemdum við 7. gr. a frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hefur gert til að ráða fólk sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði og að atvinnurekendur leiti eftir starfsfólki innan svæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Í reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, er jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum. Í þessu sambandi ber þó að ítreka að þessar reglur gilda að mjög takmörkuðu leyti um ríkisborgara Rúmeníu og Búlgaríu þar sem um þá gilda almennar reglur laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Það er því enn fremur lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á vinnuafli að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Það er því mat ráðuneytisins að þetta lögbundna skilyrði gildi einnig þegar sótt er um atvinnuleyfi fyrir ríkisborgara Rúmeníu og Búlgaríu enda þótt stjórnvöld hafi skuldbundið sig til að veita ríkisborgurum þessara ríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES sem lögfestur var með lögum nr. 106/2007, um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður óskað eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsfólki. Verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum og þá ekki síst í ljósi þess að í febrúar 2010 var skráð atvinnuleysi hér á landi 9,3%, sbr. skýrslu stofnunarinnar yfir atvinnuástand nr. 2/2010. Á sama tíma var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 9,9% af áætluðum mannafla sem svarar til 10.210 einstaklinga að meðaltali.

Í erindi kærenda, dags. 7. mars 2010, kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi reynt margar leiðir til að fá nægilega hæfa starfsmenn til starfa. Í því skyni hafi meðal annars verið leitað til Vinnumálastofnunar sem og Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Í umsögn Vinnumálastofnunar, dags. 2. júní 2010, kemur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki leitað aðstoðar stofnunarinnar við ráðningu í umrætt starf. Síðast hafi hlutaðeigandi atvinnurekandi leitað til Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, í nóvember 2006 en síðan þá hafi engin beiðni frá fyrirtækinu borist vinnumiðluninni. Þá kemur fram að vinnumiðlunin telji að auðvelt sé að finna starfsmann í umrætt starf af Evrópska efnahagssvæðinu. Því hefur hlutaðeigandi atvinnurekandi ekki mótmælt en ráðuneytið óskaði sérstaklega eftir upplýsingum um hvort umrætt starf hafi verið auglýst laust til umsóknar í bréfi sínu, dags. 29. október 2010, til umrædds atvinnurekanda.

Við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli á innlendum vinnumarkaði sé viðhaldið. Er því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem útgáfa tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði. Ljóst er að aðstæður á innlendum vinnumarkaði breyttust mjög hratt á haustmánuðum 2008 þegar skráð atvinnuleysi jókst umtalsvert. Í því sambandi má nefna að skráð atvinnuleysi fór úr 1,3% í september 2008 í 6,6% í janúar 2009 og hélt skráð atvinnuleysi áfram að aukast hér á landi þar til í apríl 2009 er það mældist 9,1%. Nokkrar sveiflur hafa verið í skráðu atvinnuleysi á þessu tímabili en það hefur þó ekki mælst lægra en 7% síðan í febrúar 2009. Í maí 2011 var skráð atvinnuleysi 7,4% á innlendum vinnumarkaði sem jafngildir því að 12.553 einstaklingar hafi að meðaltali verið án atvinnu þann mánuðinn, sbr. skýrslu Vinnumálastofnunar yfir atvinnuástand nr. 5/2011.

Þegar litið er til núverandi aðstæðna á innlendum vinnumarkaði, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, þess að ekki verður séð að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði eða af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. mars 2010, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa  […], sem er rúmenskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Héðni hf., skal standa.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum